Password help?

Things blogaxeldiego likes Explore more popular stuff on Tumblr

  1. 202
    An essential aspect of creativity is not being afraid to fail. Scientists made a great invention by calling their activities hypotheses and experiments. They made it permissible to fail repeatedly until in the end they got the results they wanted. In politics or government, if you made a hypothesis and it didn’t work out, you had your head cut off.

    Polaroid inventor Edwin Land on embracing failure, among other insights on what it takes to innovate.

    Also see Land on the 5,000 steps to success.

     
  2. 38
    Rummaging through the hard drive again...

    …Found this and thought I’d share it.

    This is the image by artist David Wiesner that triggered the Young Wizards short story “Uptown Local”.  (Which is now available in the anthology of the same name, if anyone’s wondering. There had been complaints for some time that since its publication in the mid-80s, it hadn’t appeared again anywhere but the 20th-anniversary edition of So You Want to Be a Wizard. …So that’s handled.)

    I love those fish.

     
  3. 656

    Stroboscopic exposures of Alfred Hitchcock directing Shadow of a Doubt (1942)

    ( The Atlantic)

     
  4. 61,238
     
  5. 345

    Oh, I wish it was that simple..

     
  6. 88
    We’re so self-important. So arrogant. Everybody’s going to save something now. Save the trees, save the bees, save the whales, save the snails. And the supreme arrogance? Save the planet! Are these people kidding? Save the planet? We don’t even know how to take care of ourselves; we haven’t learned how to care for one another. We’re gonna save the fuckin’ planet? … And, by the way, there’s nothing wrong with the planet in the first place. The planet is fine. The people are fucked! Compared with the people, the planet is doin’ great. It’s been here over four billion years … The planet isn’t goin’ anywhere, folks. We are! We’re goin’ away. Pack your shit, we’re goin’ away. And we won’t leave much of a trace. Nothing left. Maybe a little Styrofoam. The planet will be here, and we’ll be gone. Another failed mutation; another closed-end biological mistake
    George Carlin (via alfsaga)
     
  7. 2
    Skýjum Ofar - 15 ára

    Mig minnir að ég hafi fyrst heyrt um útvarpsþáttinn Skýjum Ofar síðla árs 1997, þegar Jói vinur minn hélt mér vakandi fram eftir kvöldi til þess heyra þá merkilegu og skrítnu tónlist sem þar var í aðalhlutverki. Ég fór þó ekki að hlusta á þáttinn að ráði fyrr en ‘98 þegar jungle og drum & bass ruddi trip hoppi og big beat endanlega úr vegi í mínu lífi. Eftir það var ég, eins og margir aðrir, sem límdur við útvarpstækið á þriðjudagskvöldum stilltur inn á „tóna tuttugustuogfyrstu aldarinnar“ enda var „popp feik“. Fram yfir miðnætti á miðvikudögum hlustaði ég því á Adda, Eldar og plötusnúða þáttarins breiða út fagnaðarerindið, jafnan með segulbandsspólu í tækinu. Spóluna hlustaði ég svo aftur á nokkrum tímum síðar þegar ég burðaðist með Morgunblaðið til áskrifenda í Hvömmunum. Með þeim hætti fjármagnaði ég plötukaup, plötur sem ég oftar en ekki heyrði fyrst í Skýjum Ofar. 

    Þegar maður hlustaði á Skýjum Ofar var maður að læra og fræðast. Maður skráði hjá sér topp tíu listana, lærði inn á stíl ólíkra plötusnúða og listamanna og púslaði saman tónlistarsöguskilning úr breikbít klassíkerunum. Jungle og drum & bass var smám saman að detta úr tísku um þessar mundir, tónlistin var hætt að þróast jafn ört og var kannski ekki jafn byltingarkennd og áður. Hún átti þó ennþá mikið inni, að minnsta kosti í mínum bókum. Tónlistin var heldur ekki það eina sem maður hafði frá Skýjum Ofar. Maður pikkaði líka upp pólitískar hugmyndir og slagorð frá Eldari (“Skýjum Ofar lætur morðingjana ekki sleppa”) og allskonar litlar ábendingar um kvikmyndir, bækur og dægurmenningu frá innskotum Adda. Skýjum Ofar, ásamt X-inu og tímaritinu Undirtónum, kynnti mann því fyrir tónlist en líka lífstíl og menningarkimum sem voru frábrugðnir þeim meginstraumi sem flestir samferðamenn manns voru og eru í. 

    Upp úr 1999 fór ég svo að reyna að fara á Skýjum Ofar kvöldin. Þá tók ég strætó niður í bæ og tók skiptimiða, til þess að ég kæmist heim þegar/ef mér var ekki hleypt inn, enda 18 ára aldurstakmark. Á kvöldunum reyndi ég að fatta hvernig í ósköpunum plötusnúðarnir mixuðu lögin svona vel saman og komst svo að því að fólk dansaði virkilega við þessa músík. Heima í Reynihvamminum hafði aðallega verið headnoddað og spilaðir tölvuleikir með tónlistina í botni. Að kynnast þessari félagslegu hlið tónlistarinnar var síst minni uppgötvun en að heyra hana útvarpi í fyrsta sinn. Að kynnast öðru fólki sem var jafn hugfangið af músíkinni var líka ótrúlega gaman og gefandi eftir að hafa gaufast í þessu að mestu í einrúmi heima við í nokkur ár.

    „Við erum Skýjum Ofar“

    Mér fannst merkilegt að komast að því að Addi og Eldar væru úr Kópavoginum og enn merkilegra að þeir hefðu verið í sama skóla og ég. Að „venjulegir“ strákar gætu gert eitthvað svona merkilegt, á Íslandi, drifnir af ástríðu og án málamiðlana þótti mér, og þykir enn, aðdáunarvert og hvetjandi. Þetta var mitt pönk. Það fyllti mann innblæstri og dreif mann áfram. Ég fann tracker forrit í heimilistölvuna til þess að semja tónlist, keypti mér mixer og plötuspilara til þess að snúa skífum og talaði kennarana í Kópavogsskóla inn á það að við strákarnir mættum halda drum & bass kvöld á efri hæð unglingadeildarinnar þegar diskótek og opin hús væru í salnum niðri. Tónsmíðunum náði ég aldrei góðum tökum á, en plötusnúðamennskan heillar mig ennþá og ég hef komið að þó nokkrum danstónlistarviðburðum síðan þá. Flestum betur sóttum en drum & bass kvöldin í Kópavogsskóla veturinn ‘98-‘99. 

    image


    Dream Warriors plötuumslag sem var stolið úr diskótekarabúri Kópavogsskóla árið 1998. Á umslagið hefur verið ritað „DJ Arnþór og DJ Eldar are the one and only“. Var umslaginu stolið vegna þessara eiginhandaráritananna hetjanna en ekki tónlistarinnar.

    Breakbeat.is

    Nokkrum árum síðar kom ég svo ásamt nokkrum öðrum inn í starf Breakbeat.is, en Breakbeat.is var afkvæmi Skýjum Ofar og annarra íslenskra drum & bass afla og fyrirbæra. Þegar fram liðu stundir tókum við smám saman við starfsemi Breakbeat.is. Undir þeim merkjum hef ég unnið með góðu fólki í ein átta ár. Tæknin, miðlarnir, leiðirnar og meira að segja tónlistin sjálf kann að hafa breyst en ég vil meina að við séum drifnir af sömu ástríðu, heiðarleika og hugsjónum og ég ímynda mér að hafi drifið Skýjum Ofar áfram á sínum tíma. Í grunninn hefur heldur ekkert breyst, við spilum taktfasta tónlist á fm bylgjum höfuðborgarsvæðisins og á dansgólfum dimmra skemmtistaða. Okkur þykir vænt um tónlistina, höfum gaman af og vonum að aðrir séu sama sinnis. Að fá að taka þátt í þessu starfi eru nóg laun í sjálfu sér. En maður vonar líka í einlægni að Breakbeat.is gegni svipuðu eða sambærilegu hlutverki hjá einhverjum þarna úti eins og Skýjum Ofar gerði hjá mér forðum daga. 

    En tímarnir breytast nú samt og mennirnir með. Að heyra Eldar og aðra gamla hunda kvarta yfir dubsteppinu og öðrum stefnum og straumum sem við höfum tekið upp á okkar arma gleður mig frekar heldur en hitt. Það segir mér að við séum ekki að hjakka í sama farinu, að við séum að fást við eitthvað nýtt sem mér eldri menn tengja ekki við en yngra fólk vill gjarnan kynnast betur. Þá er líka gaman að hafa kynnst tónlistarstefnu sem er okkar, en ekki bara arfur frá kynslóðinni sem á undan kom. Að því leyti finnst mér sagan endurtaka sig, átök dubstep hausa og drum & bass aðdáenda á Íslandi undanfarin ár finnst mér áþekk glímu djönglistana við house og techno varðhunda 10. áratugarins. Þetta er oftast gert í góðum anda og bróðerni, en menn hafa sterkar skoðanir, er það vel. 

    Takk fyrir

    Síðan á unglingsárunum hefur þessi tónlist verið mikilvægur hluti af mínu lífi. Hún hefur verið sándtrakkið við líf mitt, við hana hef ég átt ótal góðar stundir, í gegnum hana hef kynnst mörgum af mínum bestu vinum og meira að segja ástinni í lífi mínu. Ég er afskaplega þakklátur Skýjum Ofar fyrir að hafa kynnt mig fyrir tónlistinni og fyrir að hafa opnað þennan heim fyrir mér. Ég er þakklátur Adda og Eldari fyrir allt sem þeir gerðu fyrir þessa tónlist, fyrir senunna sem þeir byggðu upp og fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu starfi og taka við keflinu svo að segja. Mér finnst gott að hafa átt þá Skýjum Ofar bræður sem fyrirmyndir og er stoltur yfir að geta kallað þá félaga og vini í dag. Ég lærði mikið af því hvernig þeir gerðu hlutina og hef gert mikið af þeirra boðorðum og hugsjónum að mínum eigin, í tónlistinni og í lífinu almennt. Kærar þakkir fyrir allt saman Addi og Eldar. 

    Ég reyni almennt að fara varlega í nostalgíuna, mér finnst hún varhugaverð að mörgu leyti. En ég verð að segja eins og er að ég er ótrúlega spenntur fyrir afmælisfögnuði Skýjum Ofar, þeim plötum sem þar munu rata á fón og því fólki sem þar mun safnast saman. Hlakka til að sjá ykkur.

     
  8. 1,613

    Yes please!